alltaf í stuði með guði!!!
allt er farið að ganga mér í hagin aftur!!! ég er komin á litla
bílinn og ég vona bara að hann fari ekki að bila líka!!!! þá fer ég
yfir um!!! 
allavega ég fór heim á fimmtudaginn!!! átti ekki að mæta í neinn
tíma á föstudeginum!!! á föstudeginum mæti ég til læknisins þar sem
hann skoðaði mig!!! og vitiði hvað!!! Sigurgeir telur það líklegt
að ég sé með slitinn eða tætan liðþófa!!! sem ég veit ekki hvað
er!!! ég á að mæt í myndatöku á hnénu næsta mánudag og þá veit ég
betur hvort þarf að gera eitthvað meira!!! svo fór ég í klippingu
og litun... segi bara að það hafi verið komin tími til að ég léti
klippa mig!!!
eftir það fór ég með mömmu inn í vatnsá þar sem pabbi, Gunnar og
Þyrí voru að veiða!!! en viti hvað!!! það var gjörsamlega brjálað
veður þar!!! svo þau bara veiddu ekki neitt!! sem var bara
synd!!! áin var nánast eins og grænmetissúpa og kakósúpa
samanblandað!!!
þegar mamma og pabbi komu til baka ofan úr Vatnsá fórum við
pabbi niður í fjöru að veiða fýll, mikið er það yndislegt
að fara aftur í fýll, við náðum í kringum 20 fýla þarna um
kvöldið!!! svo á laugardagsmorgunin fórum ég, mamma
og Ástþór að veiða fýll líka!!! Oddur og co og Jonni
og co voru líka á leiðinni með fýll, sdvo komur
Hemmi Sig, Sigrún Arna og Haukur líka með einhvern smá fýll.
svo var farið niður í hesthús og reytt!!! alltaf jafn yndislegt!!!
lyktin er svo góð en öðrum finnst hún svo vond!!! um kvöldið var
svo farið heim þar sem var grillað ofan í allt liðið!! alltaf jafn
gaman þegar það er svona fljölmennt heima!!!
á sunnudaginn var svo eldaður fýll ofan í allt liðið!!! ekkert
smá gott!!! svo fór ég heim að læra aðeins!!! svo allt í einu varð
mér alveg skít kalt, óglatt og fékk þvílíkan hausverk!!!
hræðilegt!!! ég lagðist upp í rúm og ætlaði að leggja mig, en þá
hleyp ég fram á klósett og æli!!! oj hvað það er vont!!! en
allavega ég fór á selfoss um kvöldið og fór beint að sofa!!! svo
fór ég í skólann í morgun alveg drulluslöpp, fór upp á vist og fékk
mér að borða, lá svo framan við sjónvarpið þangað til að ég átti að
mæta í vinnuna!!! fór upp í vinnu en þá var ekkert að gera fyrir
mig svo þau sendu mig bara heim!!! er búin að leggja mig aðeins og
ætla nú að fara að læra undir bókfærslupróf sem er í
fyrramálið!!!
bið að heilsa í bili!!!
kv Lolla